top of page
  • LinkedIn
  • Grey Facebook Icon
  • Grey YouTube Icon
  • Grey Instagram Icon

Subaru Solterra: Rafmagnið fær Subaru-sál!

Subaru Solterra - Tork Gaur

James Einar Becker

14. maí 2026

Subaru áhugafólk eru sérstakur og dyggur hópur. Þeir skiptast gróflega í þrjá flokka. Imprezu strákinn sem er allt í einu orðinn fullorðinn, forester fólkið sem vill bara góðan, rúmgóðan og fjórhjóladrifinn bíl sem virkar, og svo Norðlendinga.

Af enhverjum ástæðum þá elska norðlendingar Subaru. Þess vegna þurfti Solterra ekki bara að vera góður rafmagnsbíll. Hann þurfti að vera nógu mikill Subaru til að fólk sem treystir merkinu myndi taka hann alvarlega.


Ekki borgarjepplingur sem er hræddur við drullu

Solterra kemur með 78 kWh rafhlöðu, fjórhjóladrifi, 342 hestöfl, 438 Nm í tog og uppgefna drægni upp á 512 kílómetra. Þetta eru fínar tölur. En tölurnar eru ekki aðalatriðið hér. Aðalatriðið er að bíllinn lætur mann trúa því að rafmagnsbíll geti enn verið alvöru Subaru. Það er fullt af rafmagnsjepplingum sem líta út fyrir að geta farið út fyrir malbikið, en verða oft taugaóstyrkir um leið og malbikið klárast. Solterra er langt í frá að vera þannig.




Hann er með 21 sentimetra veghæð og X-Mode torfæruakstursstillingu. Það hljómar mögulega eins og hefðbundið markaðs-babl, en í snjó, slabbi og drullu skiptir þetta raunverulega máli. Í reynsluakstrinum var bíllinn keyrður upp á fjall þar sem vorið var búið að breyta öllu í drulluógeð. Akkúrat þannig aðstæður þar sem margir bílar byrja að minna mann á að þeir séu fyrst og fremst hannaðir fyrir bílastæði við verslunarmiðstöðvar.


Þessar aðstæður háðu Solterra hinsvegar ekki. Hann fór beinustu leið áfram og hélt fullkomnu gripi. Hann lét ökumanni líða eins og hann væri með stjórn á hlutunum. Og það er akkúrat það sem Subaru á að gera.


Fjöðrun sem er meira Subaru en spa

Fjöðrunin í Solterra er þétt og stíf. Hún er ekki að reyna að láta bílinn svífa um eins og lúxusbát yfir öldur. Fjöðrunin plantar bílnum við veginn, í beygjum er lítið um óþarfa halla (bodyroll) og bíllinn virkar stöðugur þegar honum er hent inn í beygju af ákveðni. Bíllinn er vakandi, hann er þéttur, hann er Subaru-legur.


Eco eða Power. Ekki flækja þetta.

Solterra kemur með Eco og Power akstursstillingum fyrir venjulegan akstur. Það er eiginlega nákvæmlega eins og þetta á að vera. Annaðhvort vill maður spara orku eða maður vill fá kraftinn. Hvers vegna ætti maður að þurfa fimm stillingar inn á milli?


Innréttingin er mjög upptekin

Innanrýmið í Solterra verður seint kallað rólegt og er mikið í gangi. Mælaborðið er með alls konar efnum, litum og mynstrum. Hurðirnar halda áfram með sama hönnunar tungumál. Sætin eru með bláu leðri, dökkgráu leðri, mynstrum, línum og munstri inni í munstri.


Er þetta fallegt? Það fer eftir smekk.


Það sem skiptir samt mestu máli er að sætin eru þægileg. Þau virka vel í akstri og gefa bílnum ákveðinn karakter. Bláa leðrið er líka skemmtileg tilbreyting. Það er allt of sjaldan sem bílaframleiðendur þora að nota eitthvað annað en svart, grátt eða enn meira svart.


Lítið stýri sem virkar betur en það ætti að gera

Stýrið er skrýtið, það er lítið og næstum ferhyrnt og augljóslega hannað til þess að ökumaður sjái betur á sjö tommu stafræna mælaborðið sem situr langt frammi á mælaborðinu. Þetta er lausn á vandamáli sem Subaru bjó eiginlega til sjálft. Það hefði alveg verið hægt að hafa hefðbundið stýri, hefðbundnari staðsetningu á mælaborði og head-up display. En Subaru ákvað að fara þessa leið. Það furðulega er að þetta virkar samt ágætlega. Stýrið liggur vel í hendi og verður ekki pirrandi í akstri.


Skjárinn er stór. Kerfið er í lagi. CarPlay og Auto bjargar restinni.

Afþreyingarskjárinn er 14 tommur og kerfið er nokkuð þjált en það er samt ekki það notendavænasta í heimi. Þetta er svona kerfi sem maður notar líklega aðeins í byrjun áður en maður tengir Apple CarPlay eða Android Auto og hættir að hugsa um það. Það sem er hinsvegar skemmtilegt við kerfið er að Solterra leyfir ökumanni að slökkva á öryggiskerfum án þess að halda langa siðferðisræðu um málið. Akreinavari, blindsvæðisvöktun og önnur kerfi eru til staðar. En ef maður vill slökkva, þá má maður slökkva. Engar yfirheyrslur og engin dramatík.


Praktísk smáatriði sem skipta máli

Solterra er með sílsahlífar! Það hljómar kannski ekki spennandi fyrr en bíllinn er orðinn þakinn drullu og maður þarf að stíga út án þess að smyrja buxurnar með hálfu fjallinu. Sama gildir um snertilausa opnun á afturhlera. Þegar bíllinn er skítugur og maður vill ekki snerta hann þá er gott að geta opnað skottið án þess að koma við neitt. Mögulega eru þetta ekki hlutir sem vinna auglýsingaherferðir, en þetta eru hlutir sem gera bílinn betri í raunverulegri notkun.

 

Harman Kardon fyrir Imprezu strákinn

Hljóðkerfið kemur frá Harman Kardon, með ellefu hátölurum og bassakeilu aftur í skotti. það er eitthvað mjög viðeigandi við það að Subaru sé með almennilegt hljóðkerfi og bassakeilu aftur í. Einhvers staðar er fyrrverandi Imprezu eigandi að brosandi. Mögulega er hann ekki ungur lengur, en hann kann enn að meta gott bassabox.


Niðurstaða

Það sem skilgreinir Solterra er að hann er rafmagnsbíll sem heldur í Subaru-karakterinn. Hann er fjórhjóladrifinn, traustvekjandi, þéttur í akstri og virkilega sannfærandi í snjó, drullu og slabbi.


Fyrir Subaru fólk sem hefur beðið eftir réttu ástæðunni til að fara yfir í rafmagnið er svarið komið. Fyrir fólk sem vantar bara virkilega góðan bíl þá er svarið einnig Solterra!

 


bottom of page