
James Einar Becker
17. jan. 2026
Renault 5 Techno er svo franskur að réttast væri að bera hann fram með baguette og osti. Renault hefur tekið eina af sínum helstu goðsögnum, gamla Renault 5 og endurhannað hann fyrir nútímann með fullkomnum árangri. Þetta er eitt besta dæmið um það hvernig á að endurlífga klassík án þess að það verði klisja.
Hönnunin hittir beint í mark. Að utan og innan er bíllinn nettur, kúl og með sterkan karakter. Þetta er fullkomin blanda af því sem var gott í gamla daga og því sem virkar í dag. Þetta er einn svalasti bíll sem ég hef setið í lengi.
Að innan er skýrt að Renault hefur lagt mikla vinnu í smáatriðin. Mælaborðið og grafíkin eru bæði skýr og lipur og allt styður við persónuleika bílsins. Í Techno-útgáfunni færðu 10 tommu stafrænt mælaborð. Akstursstillingum er stjórnaða með takka á stýrinu sem ber nafnið “Multisense”. Þar getur ökumaður valið á milli Comfort, Eco, Sport og Perso. Með hverri stillingu breytist bæði útlit mælaborðsins og hljóðheimur bílsins. Afþreyingarkerfið er einfalt en skilvirkt og er Android Auto og Apple CarPlay auðvitað í boði. Það er líka hægt að kafa ofan í „My Driving“ hluta kerfisins þar sem bíllinn metur hvernig þú keyrir. Þar færðu Eco Score, Safety Score og ýmsar athugasemdir varðandi það hvernig þú keyrir. Þetta er pínu eins og að hafa gamla grunnskólakennarann sinn meðferðis.
Eitt af flottari atriðunum að utan er upplýsingaskjárinn á húddinu. Þar má finna LED-tölustafinn 5. Hann sýnir hleðslustöðu rafhlöðunnar þegar bílnum er skellt í lás. Þetta er snjallt, einfalt og mjög í anda Renault.
Hönnunarlega má greina skýrar vísanir í Renault 5 Turbo rallý bílinn frá kringum 1980. Breiðar mjaðmir og þykkar línur gefa bílnum flott „stance“.
Sumir takkar eru augljóslega teknir beint úr Dacia Duster bílum. Til dæmis takkinn sem slekkur á öllum „bingum og bongum“. Sá takki er þó algjör snilld, því hann slekkur á öllum hljóðum sem annars myndu gera mann brjálaðan í akstri.
Sætin eru ekki rafdrifin heldur stillanleg með gömlum og góðum handföngum. Það sparar bæði þyngd og kostnað sem er alveg klárlega rétt ákvörðun í svona bíl. Aftursætið er hins vegar þröngt fyrir fullvaxna, sérstaklega ef framsætið er í ökumanns stilling fullvaxins karlmanns. Hausarýmið er þó þokkalegt og aðgengi að ISOFIX-festingum er gott, bæði aftan og í farþegasæti að framan.
Renault 5 Techno er rafbíll og er hann sennilega ekki fyrir alla. Drægnin er um 300 km og er það ekki neitt sem fær fólk til að stoppa og klappa. En það er heldur ekki tilgangurinn. Þetta er fullkominn borgarbíll, snattari sem er léttur, lipur og ótrúlega skemmtilegur í akstri. Hann er snöggur á milli akreina, stabíll í beygjum þó svo að hann sé með „analog“ fjöðrun sem er að hluta til fengin úr Dacia Duster.
Fyrir þá sem vilja meira þá er til Iconic-útgáfa með allt að 409 km drægni, 150 hestöfl og 245 Nm tog. Techno útgáfan kemur samt vel búinn. Hann hefur skynvæddan hraðastillir, 10 tommu mælaborð, nálægða skynjara og bakk myndavél. Upplausn myndavélarinnar er ekkert sérstök, en hún er betri en ekkert.
Renault 5 var valinn rafbíll ársins 2025 og er það sennilega ekki rétt val. Því mögulega er þetta hreinlega bill ársins 2025 punktur!























