
James Einar Becker
1. jún. 2026
Polestar 5 er Grand Tourer sem er hannaður fyrir fólk sem vill keyra langt, hratt og með stíl. Þetta er rúntbíll. Bíll sem á heima á hlykkjóttum vegum með Miðjarðarhafið í bakgrunni.
Vegirnir í reynsluakstrinum voru ekki beinlínis fullkomnir. Þeir voru mjóir, sikksakkandi og yfirborðið var langt frá því að vera slétt. Ekki íslenskt holumalbik, en samt nógu ójafnt til að taka eftir hvort fjöðrunin í bílnum væri almennileg.
Í Performance útgáfunni kemur Polestar 5 með Magne Ride fjöðrunarkerfi. Það er mjög viðeigandi í bíl sem vill staðsetja sig með lúxus bílaframleiðendum með sportlegt yfirbragð. Magne Ride hefur til dæmis hannað fjöðrunarkerfi fyrir bílaframleiðendur eins og Ferrari og Lamborghini. Kerfið er stór merkilegt þar sem það getur stillt sig allt að þúsund sinnum á sekúndu. Þó að bíllinn sé þéttur og nokkuð stífur, þá núllast næstum allar ójöfnur út með kerfinu. Ójöfnurnar hverfa ekki alveg, en þær verða einhvern veginn ómerkilegar.
Það er akkúrat það sem svona bíll þarf að gera. Hann þarf að planta sér við veginn án þess að refsa manni fyrir það að hafa dýran smekk þegar kemur að bílum.
884 hestöfl eru ekki hófsemi
Polestar 5 Performance er með 884 hestöfl og 1.015 Nm í tog. Það er fáránlegt afl í fjögurra sæta Grand Tourer. En það er samt mjög erfitt að kvarta yfir því þegar bíllinn rífur sig upp franskar fjallshlíðar eins og þær séu flugbraut.
Það hjálpar líka að bíllinn er með 50/50 þyngdardreifingu. Þyngdardreifingin á milli fram- og afturenda skiptir miklu þegar svona stór bíll er keyrður af ákveðni í krappar beygjur. Hann er fimm metrar að lengd og tæpir tveir metrar á breidd, þannig að maður gleymir því ekki alveg að þetta er stór bíll. En hann hegðar sér ekki eins og klunnalegur þýskur lúxus sedan bíll.
Brembo bremsurnar eru líka mjög kærkomnar þegar bíll er með svona mikið afl þarf hann að geta stoppað af sama sannfæringarkrafti og hann fer af stað. Stöðugleikakerfið og spólvörnin eiga líka hrós skilið. Í bleytu, með svona mikið tog, þarf tölvan stundum að bjarga manni frá lífsháska.
Ekki léttur. Samt ekki eins þungur og maður heldur.
Polestar 5 er um tvö og hálft tonn. Það er ekki lítið. En fyrir stóran rafmagns Grand Tourer með þessum afköstum er það ekki svo vitlaust. Polestar notar mikið ál í bílnum og um þrettán prósent af því er endurunnið og er afgangurinn frá álverum sem eru keyrð áfram af náttúrulegum orkugjöfum. Smell passar þetta við þá mjög svo grænu stefnu sem Polestar sem framleiðandi hefur sett sér.
Aftursætið kemur á óvart
Það er enginn hefðbundinn aftur gluggi í Polestar 5 og staðinn er baksýnisspegillinn myndavél. Með þessu fyrirkomulagi geta farþegar aftur í Polestar 5 fengið mun meira pláss. Fullorðinn einstaklingur sem er 187 cm á hæð getur setið þarna með gott höfuðrými undir stóru panoramaþaki og nóg pláss fyrir hnén. Svo eru sætin eru í gráu nappaleðri, með hita, kælingu og nuddi. Einnig er hægt að halla bakinu sem gerir það að verkum að það gæti þótt eftirsóknarvert að setja aftur í Polestar 5.
Dual Motor eða Performance?
Það eru tvær útgáfur af Polestar 5. Performance útgáfan er skrímslið með 884 hestöfl. Dual Motor útgáfan er hófstilltari, ef hægt er að nota það orð um bíl með 748 hestöfl og 812 Nm í tog. Dual Motor bíllinn er því langt frá því að vera kraftlaus. Hann vantar bara þessa auka geðveiki sem Performance útgáfan hefur. Í staðinn fær maður þó meiri drægni. Dual Motor er með uppgefna drægni upp á 678 km, á meðan Performance útgáfan er með 558 km.
Dual Motor kemur heldur ekki með Magne Ride fjöðruninni. Hann er með hefðbundnari Polestar fjöðrun sem er samt góð. Hún jafnar ekki út ójöfnur með sama galdri og Magne Ride, en hún heldur bílnum þéttum og þægilegum.
Standi kyrr á 200km hraða
Það besta við beitta hönnun Polestar 5 er að bíllinn lítur út fyrir að vera á ferð þó hann standi kyrr. Það er líka eitthvað við sedan-lagaðan Grand Tourer sem virkar betur en enn einn miðlungs vaxinn rafmagnsjepplingur. Maður situr nær veginum og bíllinn virkar tengdari malbikinu. Það er meiri tilfinning í gegnum stýrið, dekkin og fjöðrunina á bílnum.
Svona bíll þarf að vera með mjaðmir og hefur Polestar 5 svo sannarlega þær. Þegar maður keyrir fyrir aftan bílinn lítur hann út eins og hann sé klesstur við veginn. Það er gífurlega eftirsóknarvert á bíl með þessum verðmiða.
Smáatriðin eru hluti af leiknum
Performance útgáfan fær Brembo bremsur og bremsudælur í Swedish gold lit. Loftventla tapparnir eru líka gylltir. Beltin í bílnum eru líka í sama lit og passa vel við gráu og Recaro sætin. Þetta eru smáatriði sem gera bíl eins og þennan skemmtilegri. Svo eru soft-close hurðir. Það er eitt af þessum atriðum sem maður þarf ekki fyrr en maður hefur prófað það.
Hleðsla sem passar við hlutverkið
Polestar 5 er líka fljótur að hlaða sig. Í 350 kW hraðhleðslu getur hann farið úr 10 prósentum í 80 prósent á 22 mínútum. Í 250 kW stöð tekur sama hleðsla 33 mínútur. Heima við, á 11 kW hleðslu, tekur full hleðsla um 11 klukkustundir. Þetta eru tölur sem passa við Grand Tourer hugmyndina. Bíllinn á að geta farið langt og hlaðið hratt. Það er ekki nóg að vera með mikið afl ef maður þarf svo að eyða hálfum degi í að bíða við hleðslustöð.
Halo bíll sem gerir nákvæmlega það sem hann á að gera
Polestar 5 er halo b íll Polestar. Hann er ekki bíllinn sem allir munu geta keypt. Hann er bíllinn sem fær fólk til að taka eftir vörumerkinu. Einhver mun sjá Polestar 5, langa í hann, vita að hann er dýr, og enda kannski á Polestar 2, 3 eða 4. Það er nákvæmlega það sem svona bíll á að gera.
Polestar 5 er stór, hraður, fallegur og svolítið óraunhæfur á besta mögulegan máta. Þetta er bíll sem mundi sóma sér fullkomlega á plaggati í herbergi hjá unglings dreng.



















