
James Einar Becker
31. mar. 2026
MGS6 er ekki bíll sem reynir að heilla mann með því að vera eitthvað sem hann er ekki. Þetta er fjórhjóladrifinn rafbíll með 77 kWh rafhlöðu, 360 hestöfl og uppgefna drægni upp á 480 kílómetra. MGS6 er fyrst og fremst stór, þægilegur og vel útbúinn fjölskyldubíll sem veit nákvæmlega hvert hlutverk hans er.
Mjög öflugur fjölskyldubíll.
Þrátt fyrir að MGS6 hafi 360 hestöfl er þetta ekki bíll sem biður um að vera negldur í gegnum hverja einustu beygju. Karakterinn bílsins er allt annar. Hann snýst um pláss, þægindi og notagildi.
Þetta er fyrirtaks eiginleiki þar sem fullt af fólki hefur engan áhuga á því að fjölskyldubíllinn þeirra sé að þykjast vera sportbíll. Það sem fólk vill er afl þegar þarf, þægileg sætisstaða og nóg rými fyrir allt sem fylgir daglegu lífi. Þar virðist MGS6 hitta beint í mark.
Venjulegar hleðslu- og drægni tölur
Ef bíllinn er settur í samband við 144 kW DC hleðslustöð er hægt að hlaða hann úr 10 prósentum í 80 prósent á 38 mínútum. Uppgefin drægni MGS6 eru upp á 480 kílómetra. Þetta eru tölur sem gera það að verkum að bíllinn virkar í mjög vel í daglegu amstri og á lengri ferðum.
Mjög vel búinn
Verð bílsins er líklega stærsta trompið hans. Fyrir um 6,8 milljónir færðu hita og kælingu í framsætum, hita í stýri, skynvæddan hraðaskynjara, head-up display og tíu hátalara hljóðkerfi sem kemur töluvert meira á óvart en nafnið bendir til. Eða réttara sagt nafnið sem kerfið hefur ekki.
Þetta er búnaðarlisti sem vekur athygli. Því þegar bíll kostar ca 500 þúsund krónum minna en allir beinir keppinautar en býður samt upp á allt þetta, þá fer umræðan mjög hratt úr því að snúast um merki yfir í það að snúast um virði fyrir aurinn.
Skjárinn er stór. Takkarnir eru alvöru. Gott jafnvægi.
Afþreyingarkerfið kemur í 12,8 tommu skjá og er frekar einfalt í notkun og í heildina mjög þjált og gott. Í kerfinu eru líka öpp eins og YouTube, Spotify, TikTok og Amazon Music. Einnig er auðvitað hægt að nota Apple Carplay og Android Auto.
Svo fyrir neðan skjáinn má finna alvöru takka fyrir helstu miðstöðvaraðgerðir bílsins. Og þetta er ekki bara einhver táknræn tilraun til að gleðja gamla skólann. Takkarnir virðast vera vel smíðaðir og notalegir í notkun. Þetta skiptir meira máli en margir framleiðendur virðast halda eða fatta.
MG hefur skilið eitt sem margir aðrir framleiðendur skilja ekki
Nýir bílar eru yfirleitt stútfullir af öryggiskerfum sem byrja strax að pípa, blikka og skipta sér af öllu sem þú gerir eða gerir ekki. Sum þessara kerfa eru gagnleg á meðan að mörg þeirra eru einfaldlega þreytandi. MG virðist hafa hitt naglann á höfuðið þegar kemur að því að velja eða hafna hvaða kerfi ökumanni finnst nauðsynlegt að nota hverju sinni.
Í MG Pilot hluta afþreyingarkerfisins er hægt að slökkva á völdum kerfum (eða öllum) og vista þá stillingu í minni bílsins. Þannig þarf ökumaður ekki að fara í gegnum sama ferlið í hvert einasta skipti sem bíllinn er ræstur. Þetta er lítið atriði á blaði en í daglegri notkun er þetta hins vegar akkúrat svona sem bílar vinna fólk á sitt band.
Innanbæjar keyrsla eingöngu á inngjöfinni
MGS6 býður uppa „regenerative braking“ og „one pedal drive“ möguleika. Það gerir innanbæjarakstur einfaldari og afslappaðri. Sérstaklega fyrir þá sem kunna að meta að stjórna mestöllu með inngjöfinni einni saman.
Þráðlausa símahleðslan virðist líka hafa fengið meiri athygli en oft sést. Þar er mjúkt efni við hleðslusvæðið svo síminn sé síður að rispast og lítil vifta sem hjálpar til við að kæla hann á meðan að hleðsla er í gangi. Þetta eru smáatriði sem enginn kaupir bíl eingöngu út af en segir sitt um hversu vel hlutirnir eru útfærðir.
Innanrýmið er þar sem bíllinn vinnur leikinn
Það er mjög auðvelt að fá á tilfinninguna að MGS6 ber af þegar kemur að innanrými bílsins. Þar má finna mjúk efni út um allt, snyrtilegan frágang og innréttingu sem kemur betur út en maður á kannski von á í þessum verðflokki. Efni á mælaborði sem líkist carbon fiber, vel hannaðir takkar og sæti með leðurlíki og rúskini gefa bílnumbílnum heilmikinn karakter.
Plássið í aftursætunum er síðan bókstaflega fáránlega gott. Farþegar aftan í fá einnig hita í sæti, tvö USB-C tengi og panorama þak sem opna innanrýmið enn frekar. Svo má líka sérstaklega nefna hversu auðvelt er að koma fyrir Isofix barnasætum.
Bíll fyrir fólk sem á börn, poka, kerrur og raunverulegt líf
Skottið er 674 lítrar og framskottið 67 lítrar. Þetta er í fyrsta skipti sem MG býður upp á frunk (fram skott) og það skiptir máli þar sem að allt auka geymslupláss er gull. Svo má bæta við dráttarbúnaði fyrir um 270 þúsund krónur og þá má draga 1,5 tonn.
Þessir eiginleikar gefa vísbendingu um að þessi bíll sé ekki byggður sem einhver ímyndarpakki heldur sem verkfæri fyrir fólk sem notar bílinn sinn dags daglega.
Ekki fallegastur en samt mögulega skynsamlegastur
MGS6 er sennilega ekki að fara að vinna neinar fegurðarsamkeppnir. Og er það í góðu lagi þar sem ekki allir bílar þurfa að vera með einhverjar hönnunaryfirlýsing. Sumir bílar þurfa bara að vera góð kaup og virka.
Og það er einmitt þar sem MGS6 kemur hvað sterkastur inn. Hann kostar um 6.790.000 krónur og mun á sama tíma spara kaupanda 500 þúsund krónur eða meira borið saman við samkeppnina sem eru bílar eins og Kia EV5 eða Volkswagen ID.4. MG að gera nákvæmlega það sem kínverskir framleiðendur hafa verið að gera hvað best síðustu ár. Að setja verðþrýsting á markaðinn með mjög vel útbúnum og vel smíðuðum bílum.
Dúandi fjöðrun
Fjöðrunin er þannig gerð að bíllinn virðist geta orðið dálítið blöðrulegur yfir ójöfnur og dúað aðeins frá hægri til vinstri. Þar af leiðandi verður akstursupplifunin ekki sérstaklega beitt. En ætlunin hjá MG var sennilega ekki að búa til beittan sportbíl þegar kemur að akstureiginleikum.
Sætin styðja hins vegar vel við líkama ökumanns og farþega, sérstaklega mjóbakið, og það getur skipt miklu meira máli í bíl sem á að nota í daglegan akstur, helgarferðir og fjölskyldulíf.
Niðurstaða
MGS6 virðist vera bíll sem skilur verkefnið sitt fullkomlega. Hann býður upp á mikið pláss, góðan búnað, sterkar tölur, notalegt innanrými og verð sem getur fengið marga til að líta tvisvar í átt að merki sem þeir höfðu kannski ekki hugsað sér áður.

















