
James Einar Becker
30. sep. 2026
Ef maður er staddur í Húsafelli og langar í sjávarréttasúpu á Hvammstanga, er þá fljótlegra að fara yfir Arnarvatnsheiði eða halda sig við þjóðveginn? Þetta er spurning sem hefur legið þungt á þjóðinni í áratugi.
Til að svara henni þarf rétta verkfærið. Í þetta sinn var það Land Rover Discovery Adventure, sjö manna jeppi sem á að þjóna þremur ólíkum hópum. Foreldrum sem skutla á fótboltaæfingu, veiðimönnum sem þurfa að komast að ánni og hestamönnum sem þurfa að draga kerru.
Skrúfan sem næstum rústaði deginum
Áður en lagt var af stað kom í ljós að loftþrýstingurinn var ekki jafn í dekkjunum. Hægra dekkið að aftan var í 37,9 pundum en það vinstra í 32,6. Það er ekki mikil sérþekking á óbyggðaakstri sem þarf til að átta sig á því að það er ekki gott veganesti upp á hálendið.
Ástæðan fannst fljótt. Risastór skrúfa sat föst í dekkinu. Guðjón í Vélabæ í Borgarfirði reddaði málunum og á hrós skilið fyrir sína þjónustulund. Án hans hefði ferðin mögulega endað með sprungnu dekki einhvers staðar uppi á Arnarvatnsheiði, langt frá súpunni.
Sex strokkar og örlítið rafmagn
Undir húddinu er þriggja lítra, sex strokka dísilvél sem skilar 350 hestöflum og 700 Nm í tog. Þetta er ein skemmtilegasta vél sem hægt er að fá í nýjum bíl í dag. Ekki bara út af hestöflunum, heldur líka út af toginu. Það er alltaf nóg af krafti rétt við tábergið og bíllinn þarf aldrei að rembast.
Rafmagnið er hins vegar meira krydd en aðalréttur. Discovery er mildur tvinnbíll sem safnar orku þegar það er bremsað og notar hana til að hjálpa vélinni af stað. Það er ekki hægt að stinga honum í samband og hann ekur aldrei á rafmagninu einu saman. Mildari verður tvinnbíll varla.
Loftpúðafjöðrunin vann yfirvinnu
Leiðin yfir Arnarvatnsheiði er falleg, með Eiríksjökul og Langjökul á hægri hönd, en vegurinn sjálfur er grófur fjallvegur. Loftpúðafjöðrunin vann vel fyrir laununum sínum. Ójöfnurnar hurfu ekki, en bíllinn sveif meira yfir þær en að hann skrölti.
Bíllinn í prófuninni var með 32 tommu breytingu sem Land Rover á Íslandi framkvæmir sjálft. Hún kostar rétt tæpar 800 þúsund krónur. Á heiðinni var mikið af stórum hnullungum við og á veginum og þar gerðu aukatommurnar gæfumuninn.
Ferðin tók sex klukkutíma. Það voru vissulega mörg stopp til að skoða og taka myndir, en svarið við stóru spurningunni liggur samt fyrir: þjóðvegurinn yfir Holtavörðuheiði vinnur, og það ekki naumlega. Hann er bara miklu leiðinlegri.
Málband í miðri á
Daginn eftir var markmiðið að sýna fram á að Discovery sé meira en bíll til að sækja krakkana á fótboltaæfingu. Fyrsta verkefnið var að vaða yfir á. Wade Sensing kerfið var sett í gang, sem sýnir ökumanni hversu djúpt vatnið er. Til að rannsóknin teldist fagleg var farið yfir ána tvisvar. Veiðimenn eiga það skilið.
Í hæstu stillingu loftpúðafjöðrunarinnar eru um 30 sentimetrar undir lægsta punkt og bíllinn getur vaðið allt að 90 sentimetra. Níutíu sentimetrar hljóma ekki endilega mikið, svo málbandið var tekið með út í ána. Vatnið mældist 37 sentimetrar. Þegar málbandið var dregið upp í 90 sentimetra sást vel hversu mikið borð er fyrir báru.Bíllinn var Adventure útgáfa, sem kemur með 32 tommu dekkjum, aurhlífum og stigbrettum. Stigbrettin eru ekki spennandi á blaði.
Næst var það brött brekka. Discovery er með millikassa með háu og lágu drifi og sjálfvirkum læsingum. Undirritaður viðurkennir fúslega að vita ekki nákvæmlega hvaða drif eða læsingar eiga við í svona brekku. Bíllinn veit það hins vegar og sá um restina.
Sjö sæti og dráttarkrókur í felum
Þrátt fyrir allt hálendistalið er Discovery sjö manna bíll. Aftari sætaraðirnar leggjast niður með tökkum aftur í skotti og þriðja röðin fer niður með einu handtaki. Þegar allt er komið niður er plássið óheyrilega mikið. Undir hlíf að aftan í skottinu leynist svo dráttarkrókurinn. Bíllinn má draga allt að 3,5 tonn, sem hentar þriðja markhópnum einstaklega vel. Hestamenn með kerru eru í gó ðum höndum.
Takkar sem fá að vera takkar
Miðstöðvarkerfið er einstaklega skemmtilega útfært. Maður togar takkann út til að auka blásturinn, ýtir og snýr til að stilla hitann og ýtir honum alveg niður til að stjórna sætishitanum. Með öðrum takka falla miðstöðvartakkarnir niður og í ljós kemur mjúkt leynihólf.
Það er líka einstaklega einfalt að þagga niður í öllum akstursaðstoðarkerfunum. Það má finna takka vinstra megin í stýrinu, smellt einu sinni, tvisvar, þrisvar, og öll bíb og bong eru horfin. Bíllinn tekur því þegjandi, sem er meira en hægt er að segja um marganýja bíla.
Malar eins og latur köttur
Discovery er skemmtilegastur þegar hann fær að leika sér á hálendinu. Þar nýtast öll leikföngin. En á þjóðveginum er hann ekki síðri. Þetta er alvöru ferðabíll og sex strokka vélin malar áfram eins og latur köttur.
Þriggja lítra dísilvélin er örlítið þyrst, en ekki jafn þyrst og maður gæti haldið. Á jöfnum 90 km hraða á þjóðveginum eyddi hún 7,5 til 8 lítrum á hundraðið. Uppi á Arnarvatnsheiði fór eyðslan í kringum 14 lítra. Fyrir stóran sex strokka jeppa á grófum fjallvegi er það ansi vel sloppið.
Fimm ára ábyrgð
Allir nýir Land Rover og Range Rover bílar koma nú með fimm ára verksmiðjuábyrgð, eða 150.000 km, hvort sem kemur á undan. Það er ekki smáatriði þegar bíllinn á að eyða hluta ævinnar í ám og á grýttum fjallvegum.