top of page
  • LinkedIn
  • Grey Facebook Icon
  • Grey YouTube Icon
  • Grey Instagram Icon

John Deere 6M 125: Græni draumurinn

John Deere 6M 125: Tork Gaur

James Einar Becker

19. feb. 2026

Áhuginn á traktorum hefur verið til staðar frá barnæsku og framleiðandinn John Deere lengi verið í sérstöku uppáhaldi. Reynslan af akstri dráttarvéla hafur þó verið afar takmörkuð. Síðasta dráttarvélin sem þáttástjórnandi keyrði var Ferguson 35 sem var framleidd árið 1955.

Meginspurning dagsins var skýr: Er hægt að setjast upp í flókna dráttarvél og keyra hana og nota án mikillar reynslu?


Fyrstu mínúturnar í ökumannsrými

Við fyrstu sýn er eitt augljóst: Um er að ræða vinnuvél þar sem stjórnkerfi og aðbúnaður er allt annar en í hefðbundnum bíl. Þó veitt hafi verið grunnkennslu í notkun vélarinnar, var þetta í fyrsta skipti sem ökumaður sat einn við stýrið og þurfti að treysta á eigin getu.


Ræsing reyndist einföld þar sem um hefðbundinn lykil var að ræða. Næsta skref var að setja vélina í „gír“ og velja hvort ekið væri áfram eða afturábak. Dráttarvélin er með kúplingu, en í rauninni er hún aðeins til málamiðlunar þar sem vélin er búin stiglausri skiptingu. Í stað hefðbundinna gírskipta snýst stjórnunin fyrst og fremst um stefnuval og hraðastillingu.



Lágnefja og stuttgrind Við akstur og notkun á ámoksturstækjum skiptir skyggni máli. Þessi John Deere er svokallaður lágnefja traktor. Húddið hallar niður og eykur sýn fram fyrir vélina, sérstaklega þegar unnið er með ámoksturstæki. Slík hönnun auðveldar að sjá niður á verkfæri á borð við rúllugreip eða skóflu.


Vélin er einnig stuttgrinda (short frame) traktor sem gerir hana liprari en lengri gerðir sömu línu (6M). Snúningsradíusinn er um 4,35 metrar, sem telst mjög gott í ljósi þess að um er að ræða fjórhjóladrifna vinnuvél. Slík lipurð er sérstaklega mikilvæg þegar unnið er á þröngum svæðum eða við hleðslu.


Joystick-stýring og stiglaus skipting

Á hægri hlið ökumanns er „joystick“ sem notað er til að stjórna ámoksturstækjunum og því verkfæri sem er á þeim. Þar er einnig takki sem velur akstursstefnu, áfram eða afturábak.  Þetta er mögulegt vegna stiglausrar skiptingarinnar.

Fyrir vana traktorökumenn er þetta sennilega þekkt fyrirkomulag. En fyrir óvanari notendur getur slík uppsetning skipt sköpum við nákvæmnisvinnu. Hraðar og öruggar skiptingar milli áfram- og bakk aksturs sem auðvelda vinnu. Og allt er þetta gert með einni hendi.


Afl, fjöðrun og vinnuaðstæðurUm er að ræða John Deere 6M 125 sem skilar um 125 hestöflum, með möguleika á tímabundinni aukningu (boozt) upp í um 145 hestöfl þegar þörf krefur. Vélin metur sjálf hvenær aukið afl er virkjað, til dæmis við meiri hraða eða aukið álag.


Þrátt fyrir að fjöðrunin sé almennt harðari en í fólksbílum, er aðbúnaður í ökumannsrými hannaður til að draga úr hnjaski. Ámoksturstækin er með fjöðrun sem minnkar högg við akstur. Sætið er með loftpúðafjöðrun sem dregur úr hossum og þar með þreytu eftir langa vinnudaga.


Hljóðeinangrun vekur einnig athygli. Í farþegarými er lítið um vélahljóð miðað við það sem margir tengja við dráttarvélar. Slíkur munur skiptir máli fyrir þá sem vinna lengi í vélinni og þurfa að geta átt samskipti eða notað talbúnað án vandræða.


Tenging kerru: próf á færni

Tenging kerru er klassískt próf fyrir alla sem stjórna dráttarvél. Þessi vél er með útlengjanlegum lyftikrók sem auðveldar að ná í kerruna og festa við traktorinn. Verkið var kynnt sem einfalt tveggja handa ferli og eftir eina sýnikennslu tókst tengingin í fyrstu tilraun.


Stjórntæki, tengingar og notagildi

Hægra megin í ökumannsrýminu er fjölbreyttur hnappabúnaður sem kann að virðast flókinn í fyrstu. Við nánari skoðun eru mörg kerfi þó sambærileg við það sem þekkist í öðrum farartækjum: stillingar á blæstri, hitastigi , val á sjálfvirku eða stöðugu fjórhjóladrifi, diff-læsingar og ljósastillingar með minnishnöppum.

Einnig má finna litakóðaða takka fyrir þremur vökvasneiðum , aflúrtak með þremur hraðastigum, og tengimöguleika eins og USB-C, USB og AUX.


Í vélinni er farþegasæti, kælibox, opnanlegir gluggar og tengibúnaður að framan, sem nýtist til dæmis við slátt með sláttuvél að framan og annarri að aftan.


Ljós á ámoksturstækjum

John Deere ámoksturstækin, 623R, koma með áföstum ljósum. Það er sérstaklega nytsamlegt við aðstæður þar sem skyggni er takmarkað, til dæmis í dimmum hlöðum eða á tímum árs þar sem dagsbirta er lítil. Ljós á verkfærum að framan bæta bæði öryggi og nákvæmni við vinnu.


Niðurstaða

Ökumaður var fljótur að komast upp á lagið með að nota vélina og er það vegna vel hannaðs stjórnkerfis, stiglausrar skiptingar og almennt skýrrar uppsetningar á stjórntækjum sem eru til þess fallin að auðvelda óvönum að komast fljótt inn í akstur og grunnnotkun. Það sem vekur jafnframt athygli er þægindi í ökumannsrými, hljóðeinangrun og lipurð. Þetta gerir dráttarvélina að verkfæri sem er ekki aðeins aflmikil heldur einnig mannlegri í notkun en margir gera ráð fyrir.



bottom of page