top of page
  • LinkedIn
  • Grey Facebook Icon
  • Grey YouTube Icon
  • Grey Instagram Icon

Hyundai Ioniq 9 Performance: Fjölskyldu flaggskip sem hefur farið í vindgöng

Hyundai IONIQ 9 Performance - Tork Gaur

James Einar Becker

9. mar. 2026

Hyundai Ioniq 9 Performance er ekki einn af þessum nýju rafmagnsjeppum sem lítur út eins og ísskápur. Ioniq 9 er með sitt eigið andlit, sitt eigið form og sitt eigið “vibe”. Það ver alls ekki milli mála á hverskonar bíl maður keyrir.

Ioniq 9 er byggður á sama grunni og Kia EV9. Stærsti munurinn er samt sá að EV9 lítur út eins og múrsteinn á meðan að Ioniq 9 lítur út eins og hann hafi allavega séð innan úr vindgöngum. Útkoman er stór rafmagnsjeppi sem er straumlínulagaðri en maður á von á í þessum stærðarflokki.


Pixel og Minecraft aðferðafræði

Hönnunartungumál bílsins er mjög sérstakt. Framljósin eru „pixlu“ (ferköntuð) og minna helst á eitthvað sem hefði getað verið hannað í tölvuleiknum Minecraft. Sagan heldur áfram að aftan þar sem aftur ljósin, þokuljósið og jafnvel bremsuljósin eru einnig pixluð


Er þetta fallegt? Það fer algjörlega eftir smekk. En það skiptir heldur ekki öllu máli því bíllinn gerir nákvæmlega það sem karaktersterk hönnun á að gera. Hún gerir hann einstakan.



Sjö manna bíll

Þetta er sjö manna bíll með þriðju sætaröð. Aftast eru tvö sæti sem fara upp og niður með einföldum tökkum og er all sjálfvirkt. Það eitt og sér er lúxus fyrir alla sem hafa einhvern tímann þurft að glíma við leiðinleg handföng og illa hannaðar sætalausnir.


Farangursrýmið er líka þannig að það hættir nánast að vera bara skott. Með þriðju röðina niðri færðu 908 lítra. Með hana uppi fær maður 335 lítra. Og ef önnur röðin er líka felld niður er maður kominn með 2.419 lítra. Þá er bíllinn orðinn hálfgerður sendibíll í sparifötum.


Plássið aftan í er eiginlega fáránlegt

Það sem virkilega skilgreinir Ioniq 9 er plássið. Sérstaklega í annarri sætaröðinni. Þar virðist Hyundai hafa tekið ákvörðun um að enginn farþegi eigi nokkurn tímann þurfa að kvarta yfir fótaplássi aftur.


Skyggðar rúður, uppdraganleg gluggatjöld og risastórt panorama þak gera farþegarýmið bjart og þægilegt. Allt þetta pláss gerir það verkum að einkar þægilegt er að koma fyrir barnabílstólum.


Það er líka hægt að fá bílinn sem sex manna útgáfu með tveimur kaftein sætum í annarri röð. Það er bæði nett og mjög praktískt. Þá geta yngri farþegar gengið á milli sætanna aftur í þriðju röðina án þess að klifra eins og litlir fjallgöngufólk yfir allt innanrýmið.


Farþegar aftan í fá tvö USB-C tengi upp á 100 wött og meira að segja hita og kælingu í sætin. Þetta er ekki bara stór bíll. Þetta er bíll sem hefur verið hugsaður út frá því að fólk muni raunverulega sitja í honum.


Smáatriðin gera meira en maður heldur

Performance útgáfan kemur á 21 tommu felgum sem gefa bílnum flottan karakter. Þær minna á gamla BMW Alpina felgustíl frá 1980.


Svo eru Hyundai með svokallað UV-C hólf sem getur sótthreinsað símann þinn eða annað smádót. Þetta hefði verið stórkostleg uppfinning árið 2020. Samhliða því færðu þráðlausa símahleðslu og möguleikann á að nota símann sem lykil.


Undir húddinu er svo 88 lítra frunk sem hentugt fyrir hleðslukapla og annað smálegt. Þar er líka neyðarhnappur ef einhver skyldi lokast inni undir húddinu, sem er líklega ekki eitthvað sem gerist oft, en samt gott að vita að Hyundai hafi hugsað þetta lengra en flestir.


Myndavélaspeglar sem þarf að venjast

Hliðarspeglarnir eru svo myndavélar. Það tekur smá tíma að venjast því. Skjáirnir eru ekki á sama stað og venjulegir speglar og dýptarskynjunin er aðeins öðruvísi. Fyrstu metrarnir á bílnum geta því verið smá skrýtnir.


En þetta er ekki eitthvað sem eyðileggur upplifunina. Þvert á móti þá virkar þetta mjög vel þegar maður venst því. Svo Þegar stefnuljósið er sett á birtist  mynd af blinda punktinum í mælaborðinu. Það er mjög nytsamlegt og eitt af þessum tæknilausnum sem hefur raunverulegt gildi í daglegum akstri.


Lúxus cruiser með 435 hestöfl

Ioniq 9 Performance skilar 435 hestöflum og um 700 Nm í togi. Það er meira en nóg í bíl af þessari stærð. Þetta er ekki sportjeppi í þeim skilningi að hann biðji þig um að ráðast á hverja beygju eins og þú sért að mæta í tímatöku. En hann er kraftmikillog mjög sannfærandi í öllum aðgerðum þegar þú biður hann um að hreyfa sig.


Það er áhugavert að þrátt fyrir talsvert meira afl en Limited útgáfan af IONIQ9 þá er drægnin ekki fimm kílómetrun styttri. Heildar drægnin er í kringum 605 kílómetrar og það setur bílinn í mjög nothæfan flokk fyrir langkeyrslu.

Hleðslutölurnar eru ágætar. Á 50 kW stöð tekur hleðsla frá 0 upp í 80% um 109 mínútur. Á 350 kW stöð fer tíminn niður í 24 mínútur.

 

Mjög hljóðlátur og mjög þægilegur

Eitt af því sem virkar best í þessum bíl er hljóðvistin. Hann er einstaklega vel hljóðeinangraður og í rauninn svo hljóðlátur að maður fer nánast að heyra aðeins of vel í eigin hugsunum.


Fjöðrunin er þannig að maður hættir nánast að taka eftir henni. Og það eru meðmæli. Hún er ekki að reyna að sanna neitt, ekki of stíf, ekki of mjúk, bara róleg og hlutlaus. Bíllinn svífur áfram með þeim hætti sem maður vill að stór rafmagnsjeppi geri.


Þetta er einfaldlega lúxus „cruiser“. Bíll sem vill miklu frekar taka fjölskylduna, farangurinn og hálft heimilið með sér og renna svo hljóðlega af stað í næsta landshluta.


Skjáir, takkar og gott jafnvægi

Stafræna mælaborðið og afþreyingarskjárinn eru 12.3“. Kerfið er kannski fullflókið fyrir suma en Hyundai bjargar því með að hafa allt sem tengist miðstöðinn stillanlegt með alvöru áþreifanlegum tökkum. Það gerir bílinn auðveldari í notkun og miklu minna pirrandi í daglegum akstri. Það eitt og sér lyftir upplifuninni.


Performance útgáfan fær svo nappaleður, rúskinn í innréttingunni og Bose hljóðkerfi með 14 hátölurum. Framsætin bjóða upp á hita, kælingu og nudd. Það er því mjög auðvelt að komast að þeirri niðurstöðu að þessi bíll sé ekki bara stór og praktískur heldur líka alvöru premium vara.


Hyundai Ioniq 9 Performance er stór, sérstakur og mjög vel heppnaður rafmagnsjeppi. Hann er ekki að reyna að höfða til allra og það er nákvæmlega það sem gerir hann áhugaverðan. Hönnunin er djörf, innanrýmið er risavaxið og þægindin eru þannig að þessi bíll tikkar í öll box fyrir fólk sem keyrir mikið og vill taka fjölskylduna með í ferðalag án þess að fórna lúxus.



bottom of page