top of page
  • LinkedIn
  • Grey Facebook Icon
  • Grey YouTube Icon
  • Grey Instagram Icon

Hongqi E-HS5: Hressasti bíllinn á markaðnum

Hongqi EHS5 - Tork Gaur

James Einar Becker

24. apr. 2026

Eftirvæntingin var töluverð áður en Hongqi E-HS5 komst í hendur undirritaðs. Bíllinn stóð ekki aðeins undir væntingum, heldur reyndist hann betri en vonir stóðu til. Hann er þægilegur, kraftmikill og vetrarhæfur fjölskyldubíll sem sameinar notagildi og akstursánægju með sannfærandi hætti.

Niðurstaðan er bíll sem skilar meira en búist var við, án þess að þurfa að reiða sig á óvæntar brellur eða yfirborðslega tilburði.


Ekki minni. Bara beittari.

Það er freistandi að kalla E-HS5 litla bróður Hongqi E-HS7. Það er vissulega rétt á blaði. En í akstri virkar bíllinn ekki eins og smækkuð útgáfa af stærri bíl. Miklu frekar eins og þéttari og beittari túlkun á sömu hugmynd.


Hann er aðeins minni, aðeins léttari og fyrir vikið aðeins snarpari. Bíllinn verður liprari í akstri og fær meira sportlegt yfirbragð án þess að missa rökin fyrir því að vera fjölskyldubíll. Hönnunin á bílnum hitta einnig beint í mark. Línurnar eru skarpari, hlutföllin þéttari og heildarmyndin sterk.



610 hestöfl í fjölskyldubíl.

Hongqi E-HS5 er með 610 hestöfl og 623 Nm í tog. Hann fer úr 0 í 100 km/klst. á fjórum sekúndum. Þetta eru tölur sem hljóma eins og eitthvað sem ætti að tilheyra mun dýrari og sérhæfðari bíl. En hér eru þær komnar í nettan rafmagnsbíl sem á að sinna daglegu lífi. Enginn þarf 610 hestöfl. Það er augljóst! En það er samt óneitanlega gaman að vita að þau séu þarna. Og af því að bíllinn er léttari en stærri bróðirinn verður upplyfunin enn skýrari. Hann er snarpari, kvikari og einfaldlega aðeins meira vakandi.


Íslenskar aðstæður afhjúpa allt

Margir bílar eru fínir þar til veturinn mætir af því að Þá byrjar raunprófið. Þar stendur E-HS5 sig fullkomlega vel. Bíllinn var prófaður í hálku, snjó og leiðinlegu slabbi sem fylgir íslenskum vetri. Þar stóð hann sig mjög vel. Það skiptir máli að bíll með svona mikið afl verði ekki taugaóstyrkur í vondum aðstæðum. Stöðugleikastýringin vinnur fyrir laununum sýnum og gefur ökumanni tilfinningu fyrir miklu öryggi frekar en stressi.

Það hjálpar líka að undir bílnum er fyrirtaks veghæð eða 15,5 cm.


Drægni og hleðslutölur á fyrirtaks stað

E-HS5 kemur með 85 kWst rafhlöðu og uppgefna drægni upp á 522 km. Það eru mjög fínar tölur í þessum flokki. Hraðhleðslan hljómar líka vel, þar sem bíllinn á að geta farið úr 10 í 80 prósent á tuttugu mínútum í DC hleðslu.

Það er akkúrat svona samsetning sem fólk vill sjá. Ekki bara mikið afl til að monta sig af, heldur líka drægni og hleðsla sem gera bílinn raunhæfan í notkun.


Innrétting sem hittir í mark

Innanrýmið er eitt af því sem gerir þennan bíl samkeppnishæfan. Mælaborðið er stílhreint og laust við allt óþarfa kraðak. Það er nútímalegt án þess að vera með nokkurn rembing. Það eru nánast engir hefðbundnir takkar, sem verður ekki öllum að skapi. Nánast allt fer í gegnum afþreyingarskjáinn. Því til varnar má nefna að kerfið er einstaklega lipurt. Það er enginn pirrandi hiksti, engin töf og ekkert hangs. Það hjálpar líka að head-up displayið er skýrt og gott. Þó það vanti hefðbundið stafrænt mælaborð fyrir aftan stýrið verður upplifunin ekki fátækleg.


Frágangur sem lítur ekki ódýrt út

Hongqi virðist hafa lagt alvöru vinnu í að láta bílinn ekki bara virka vel á blaði. Það sést á fráganginum. Mjúk efni eru víða, smáatriði eru snyrtileg og innréttingin gefur dýrari tilfinningu en verðið gefur til kynna.


Hljóðkerfið hjálpar líka til. Fjórtán hátalarar og bassabox í skottinu gefa bílnum ákveðinn karakter. Svo eru þokkalega rúmgóð skott og framskott, sem eykur notagildið í daglegu lífi.


Nógu stór fyrir daglegt líf

Þótt E-HS5 sé minni en E-HS7 er hann ekkert þröngur. Það er vel hægt að sitja aftur í sem fullorðinn einstaklingur því plássið nýtist vel þar sem hné og lofthæð er vegleg. Panorama-glerþak og tvö USB-C tengi bæði að framan og aftan hjálpa líka til við að gera bílinn nútímalegan og notalegan í daglegri notkun.


Öryggiskerfi með kostum og göllum

Eins og í flestum nýjum bílum er E-HS5 troðfullur af öryggiskerfum. Það er bæði gott og örlítið þreytandi. Sum kerfi eru gagnleg, önnur minna sig fulloft á tilvist sína.


Tvö atriði standa þó upp úr. Akreinavörnin er vel útfærð og auðskilin. Einnig er bíllinn með athyglisvöktun sem fylgist með augum ökumanns. Slík kerfi geta orðið pirrandi, sérstaklega þegar ökumaður er að fikta í skjá eða stilla eitthvað inni í bílnum. En í EHS5 er þó hægt að draga úr þessu eftirliti með einföldu handtaki ef fólk vill ekki hafa það á tilfinningunni að fylgst sé með manni í tíma og ótíma.


Pro virðist vera rétta útgáfan

Bíllinn í prófuninni var Pro útgáfa. Hún kostar um 300 þúsund krónum meira en Premium útgáfan. Fyrir það fær kaupandi stærri felgur, suede í toppinn og nudd í sætum. Allt hitt er í grunninn eins.


Það hljómar ekki eins og stór bylting. Samt er þetta líklega útgáfan sem flestir munu vilja. Verðmunurinn er ekki meiri en svo að hann réttlætist nokkuð auðveldlega, sérstaklega þegar það er hugsað til þess hvað nýr 21“ felgu gangur kostar einn og sér.


Mikið fyrir peninginn

Það sem situr helst eftir er þessi tilfinning að Hongqi sé að bjóða meira en maður býst við. Ekki bara meira afl og meiri búnað. Heldur heildarpakka sem virkar dýrari, kraftmeiri og betur útfærður en verðið gefur til kynna. Það er einmitt þess vegna sem E-HS5 virkar svona vel. Hann er ekki bara skynsamlegur. Hann er líka spennandi. Það er sjaldgæf blanda.



bottom of page