
James Einar Becker
27. des. 2025
Fáir bílar frá BMW bera jafn sterka blöndu af þokka og nostalgíu og BMW 850 Ci. Þetta flaggskip BMW frá tíunda áratugnum var ekki hannaður til að vera söluhæsti bíll framleiðandans. Áttan var hönnuð með það í huga að vera geislabaugur BMW eða svokallaður „halo“ bíll þýska framleiðandans. Bíllinn sem allir drógust að í sýningarsalnum þó svo fæstir höfðu efni á slíku eintaki. Í staðinn endaði fólk oft með lykilinn að nýrri 3 línu og plaggat af áttunni á vegg bílskúrsins.
Á tíunda áratugnum var heimur sportbíla yfirfullur af ítölskum kennileitum. Countach, Diablo, Testarossa voru ofurbílar sem prýddu veggspjöld í barnaherbergjum um allan heim. En í Biskupstungum var drengur sem dreymdi um tveggja dyra GT bíl með framljós sem poppuð upp og niður. Fyrir hann var BMW 850 ekki svo langt frá raunveruleikanum. Af því að úti á hlaði var nefnilega BMW 735 iA E32. Og það sem að gerði þennan E32 merkilegan var það að hann var einnig fáanlegur með sömu 5.0 lítra V12 vél og E31 850.
Fimm lítra vélin var (og er) silkimjúk og kraftmikil með 298 hestöflum sem hvíslaði afl frekar en að öskra það. BMW 850 Ci var ekki smíðaður til að vera tryllitæki á kappakstursbraut. Hann var smíðaður til að rúnta um Flórída skaga, Eyjafjörðinn og Frönsku Rivíeruna. Bíllinn var og er enn Grand Tourer í sinni hreinustu mynd.
E31 kynslóðin var einnig merkileg frá verkfræðilegu sjónarhorni. Þó bíllinn deildi DNA með sjö línunni, var fjöðrunin markvisst stillt stífari, lægri og beittari. Útkoman var sportleg tilfinning beint í stýrið sem gerði akstursupplifunina persónulegri og skemmtilegri. Hann bauð upp á það sem GT-bílar eiga að bjóða upp á. Tilfinningar, upplifun, útlit og „kúl factor“ .
Í dag eru margir 850 bílar ekki alveg 100% eins og þeir komu frá verksmiðjunni eða OEM/stock. Það þarf samt alls ekki að vera galli. Tíminn hefur kennt eigendum að uppfæra það sem skiptir máli og er oftast mjög smekklegt.
Áttan sem fjallað er um í myndbandinu er á 18" Alpina felgum sem hafa tekið við keflinu af upprunalegu 16" „Throwing star“ felgunum. Þær voru vissulega táknrænar og fullkomnar fyrir sinn tíma en passa ekki alveg við daginn í dag.
Pústkerfi bílsins er oft eitt af því sem er skipt út og er það stundum besta uppfærslan. Hljóðið úr vel stilltri V12 vél í 850 Ci með opnara pústflæði gefur honum rödd sem passar betur við útlitið. Djúp, mjúk og full af karakter.
Það sem gerir BMW 850 Ci sérstakan í dag er ekki aðeins vélin eða útlitið, heldur sagan. Þetta er bíll sem kallar fram minningar um bílamenningu sem var ósköp einföld: bílar voru tákn, ekki fjárfestingar. Þeir voru draumar, ekki Excel-línur. Allt var auðvitað betra þegar við vorum börn og BMW 850 Ci var bíllinn sem skipti mestu máli í huga drengsins sem átti Match Box útgáfuna af þessum bíl.
Í heimi þar sem nýir rafbílar og 0–100 tölur stela fyrirsögnum, minnir 850 Ci okkur á það sem gleymist stundum: Sumir bílar eru ekki smíðaðir til að slá met. Þeir eru smíðaðir til að skapa augnablik og tilfinningar. Meira að segja 35 árum seinna þá skapar bíllinn enn þá augnablik fyrir fertuga karlmenn sem eru með andlegan þroska á við 10 ára strák.































